Skerpa er stéttarfélag fyrir einyrkja í tæknigreinum

Sífellt stærri hópur sérfræðinga starfar sjálfstætt í tæknigeiranum eða tengdum greinum. Vinnutíminn er oft langur hjá verktökum þar sem kvöld- og helgarvinna er í fyrirrúmi.

  • Ertu að fá borgað í samræmi við ábyrgð þína og færni?
  • Hvert er tímakaupið þitt?

Fáðu ráðgjöf hjá okkur eða settu inn þínar forsendur í reiknivélina okkar, sem er sérsniðin fyrir einyrkja.

Þú hefur byggt upp þekkinguna, sérð um verkefnin, viðskiptin og ábyrgðina. En hver sér um þig? Hver gætir þinna réttinda þegar þú vinnur einn?

 

Skerpa – félag tæknifólks er stéttarfélagið fyrir sjálfstætt starfandi fólk í tækni, skapandi greinum og tengdum störfum.

Með því að ganga í Skerpu færðu öryggisnetið sem þú þarft:

 

  • Aðstoð við að tryggja að þú fáir rétt laun miðað við þekkingu þína og færni.
  • Ráðgjöf og vernd þegar kemur að samningum.
  • Aðgang að sjúkrasjóði, orlofshúsum og styrkjum til endurmenntunar.

Tryggðu þér þessi réttindi fyrir 19.933 kr. á mánuði.

Skerpa sameinar einyrkja og fagfólk sem vill hafa sitt á hreinu.

Þú vinnur sjálfstætt – en þú ert ekki einn!