Hvað er Skerpa stéttarfélag og hvað gerum við?
Skerpa telur vel yfir 2300 félaga.
Félag sýningarmanna við kvikmyndahús, Félag kvikmyndagerðarmanna og Félag tæknifólks í rafiðnaði tóku höndum saman og mynduðu eitt stórt og sterkt félag saman, félag tæknifólks FTF árið 2021. Árið 2024 sameinuðust Félag tæknifólks og Félag íslenskra símamanna og á aðalfundi sameinaðs félags árið 2025 var kynnt nýtt nafn félagsins: Skerpa.
Félagið heldur utan um félaga sína sem starfa í mörgum greinum á fjölmörgum vinnustöðum og gætir hagsmuna þeirra sem snúa að vinnuveitanda.
Félagið leggur sig fram um að styrkja félaga sína til vaxtar í sínum störfum með því að bjóða upp á endurmenntun sem þjónar þeim, á sínum vegum eða/og í samstarfi við aðrar menntastofnanir.
Félagið semur um kaup og kjör á vinnumarkaðnum fyrir félaga sína með Rafiðnaðarsambandi Íslands (RSÍ).
Félagið, með aðild að RSÍ, styrkir félaga sína út frá þeim reglum sem um sameiginlega sjóði sambandsins og aðildarfélaga þeirra gilda hverju sinni.
Félagar hafa fullan aðgang að orlofskerfi, afsláttarkerfi og öðrum sjóðum RSÍ auk viðburða sem RSÍ stendur fyrir.