„Við erum hér í fyrsta sinn með sem aðalbakhjarlar. Í fyrra hitti það þannig á að við vorum um það bil að fara að breyta um nafn. Við vorum hérna en þóttumst ekki vera það. Núna erum við hins vegar með af fullum þunga,“ segir Ingi R. Ingason, söluráðgjafi ljósvakabúnaðar hjá Ofar.

Ofar er ásamt Atendi, Sýrlandi, Luxor og Exton í hópi aðalbakhjarla Bransadagsins 2026. Að deginum standa annars Skerpa, Rafmennt og Harpa.

„Við erum hér að sýna þá breidd sem við erum með í vöruúrvali fyrirtækisins. Við erum með ótrúlega breitt vörusvið í hljóði, mynd og tengdum búnaði. Við erum með innan okkar vébanda vörumerki á borð við Lenovo, Sony, Cannon, Black Magic, Design, Sharpe, BenQ, Yamaha og fleiri. Bransadagurinn er mjög góður vettvangur til að sýna bransanum okkar vörur.“

Hann segir ungt fólk áberandi – gaman sé að fá ungt og forvitið fólk á básinn. „Hér hefur verið fullur bás af skemmtilegum krökkum í morgun. Þau hafa fengið að tala við menn eins og Bjarka Guðjónsson frá Trickshot og Gabriel Catelli frá Black Magic, sem eru báðir á básnum hjá okkur. Þetta hefur verið mjög skemmtilegt,“ segir hann.

Ingi segir Bransadaginn kærkominn viðburð sem hjálpi þeim að kynna nýja vörumerkið Ofar, búnaðinn sinn og hjálpi þeim að kynnast enn betur fólki í bransanum. „Við finnum að þetta nýja vörumerki okkar, Ofar, hefur komið sterkt inn og er vel kynnt. Það er mjög ánægjulegt,“ segir hann og bætir við að Ofar-básinn sé litfagur og blár, eins og sjálft hafið.