Aðalfundur Skerpu var haldinn 29. apríl 2026.
Góð mæting var á fundinn en gera þurfti breytingu á dagskrá hans þar sem ársreikningar lágu ekki fyrir og lagt til að þeim lið yrði frestað til framhaldsaðalfundar sem haldinn yrði hið fyrsta.
Ragnar formaður flutti skýrslu stjórnar og kom fram í máli hans m.a. að markaðsátak með nýtt nafn félagsins hefði skilað sér í aukinni meðvitund um tilvist þess. Félagar eru nú orðnir 2700. Skýrslu stjórnar má lesa hér
Breytingar urðu á stjórn félagsins þegar Róbert Steingrímsson var sjálfkjörinn varaformaður félagsins. Fjögur framboð bárust í 3 laus sæti í stjórn. Frambjóðendur voru: Anna Melsteð, Elva Sara Ingvarsdóttir, Jónína Ragnheiður Kristjánsdóttir og Sigríður Rósa Bjarnadóttir. Frambjóðendur, sem staddir voru á aðalfundinum, kynntu sig stuttlega og svo var gengið til kosninga. Anna, Jónína og Sigríður hlutu kosningu.
- Anna kynnir sig
- Jónína kynnir sig
- Sigga Rósa kynnir sig
Stjórn Skerpu er því skipuð svona:
- Ragnar G. Gunnarsson, formaður Skerpu
RSÍ: aðalmaður í miðstjórn, menntanefnd, stjórn Rafmenntar - Róbert Steingrímsson, varaformaður Skerpu
RSÍ: varamaður í miðstjórn - Haraldur Örn Sturluson
RSÍ: aðalmaður í miðstjórn - Jónína Ragnh. Kristjánsdóttir
- Sigríður Rósa Bjarnadóttir
RSÍ: varamaður í miðstjórn, lífeyrisnefnd, varamaður í sambandsstjórn, alþjóðanefnd, formaður fjölskylduhátíðarnefndar. - Elma Bjarney Guðmundsdóttir
RSÍ: formaður launanefndar, aðalmaður í miðstjórn, jafnréttisnefnd. - Sigurjón Ólason
RSÍ: aðalmaður í miðstjórn. - Anna Melsteð
Aðalmaður í miðstjórn, formaður orlofsnefndar RSÍ, jafnréttisnefnd ASÍ og RSÍ
Varamenn í stjórn Skerpu:
- Hafþór Ólafsson
RSÍ: varamaður miðstjórn. - Gunnar Ásgeirsson
- Agnes Olejarz
- Páll S. Guðmundsson
RSÍ: varamaður í miðstjórn, fjölskylduhátíðarnefnd.
Þar sem Anna tók sæti í stjórn tók Sæunn Hrund Björnsdóttir sæti í trúnaðarráði.
Eftir umræðu um önnur mál frestaði Benóný Harðarson fundarstjóri fundi og gengið var til kvöldverðar. Framhaldsaðalfundur verður boðaður svo fljótt sem verða má.
